laugardagur, janúar 13, 2007

Útgöngubann eða ekki útgöngubann

Það er alveg nóg að gera að fylgjast með fréttunum hérna bara til þess að vita svona rétt hvað er að gerast í Bangladess ákurat núna. Það var sem sagt sett á útgöngubann í næturtímunum en það entist þó ekki lengi á næsta dag var því aflétt. Þetta fékk mig hins vegar aðeins til at velta því fyrir mér hvernig upplýsingar um svona hluti er dreift. Ég sá þetta fyrst inn á danskri fréttasíðu og ég get ímyndað mér að flestir hérna í Bangladess hafi séð þetta í fréttu en hvað með það fólk sem að á ekki sjónvarp eða útvarp og hvað þá tölvu. Er bara hægt að handtaka þetta fólk á staðnum fyrir að hafa ekki hlýtt úgöngubanni eða ætli þetta sé gert svoleiðis að fyrstu nóttina eða svo þá fær fólk bara aðvaranir.

Þetta fær mig síðan auðvita til að hugsa alment up ástandið hérna í landinu. Það eru planaðar kosningar 22. janúar en eins og málin standa núna þá trúir enginn öðru en að kosningarnar verði algjör sirkus þar sem núverandi stjórn fer með sigur af hólmi. Stjórnarandstaðdan á því aldrei eftir að viðurkenna þessar kostningar, nema auðvitað ef að þeir vinna. Þetta þýðir auðvitað að 22. júnar á ekki eftir að vera neinn töfradagur þar sem öll þessi pólitísku vandamál leisast. Þessi dagur á bara eftir að marka tímamótin í sambandi við um hvað deilan snýst. Það er því ósköp erfitt að segja til um hvað á eftir að gerast hérna næstu vikurnar og sumir spá því enn að herinn eigi eftir að taka völdin á einhverjum tímapunkti í nánustu framtíð.

Engin ummæli: