mánudagur, júlí 30, 2007

Þá er sagan að enda komin

Það er að segja sagan um Harry Pottur. Ég var einmitt að klára síðustu bókin í gærkvöldi. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að ég fari að blaðra um það hvernig hún endi og hver það er sem að deyr. Það er hins vegar komin tími á að lesa allar bækurnar aftur þar sem að ég held að það muni vera gaman að geta lesið þær allar í eini runu og að þurfa ekki að býða í heilt ár eða meira til að komast að því hvað gerist í næstu bók.

Ég ætlaði hins vegar aðallega bara að láta vita af því að við höldum áleiðis til Danmerkur á morgun. Það verður hins vegar eins dags verslunarstopp í Bangkok svo það verður ekki fyrr en á fimmtudaginn að við komum til Danaveldis og þá læt ég kannski heira frá mér.

Engin ummæli: