föstudagur, janúar 20, 2006

Enn á lífi

Ég er greinilega búin að vera mjög löt að skrifa að undanförnu en ég verð nú líka að viðurkenna að eftir að hafa eitt öllum deginum í að skrifa og lesa yfir lokaverkefnið þá er ekki mikil löngun hjá mér að fara að skrifa meira. Ég ætlaði því bara að láta vita að ég væri enn á lífi og uppfæra stöðuna á lokaverkefninu.

Staðan á lokaverkefninu:
Fjöldi síðna: 100 (af um 100, sem að þýðir að ég þarf bráðum að fara að flytja eitthvað af efni í viðauka)
Fjöldi lélegra síðna: 30
Fjöldi góðra síðna: 70
Fjöldi síðna sem Hannes er búin að lesa yfir: 70
Fjöldi síðna með útskriftum frá viðtölum: 44
Fjöldi kláraða síðna: 0

Engin ummæli: